Púslmyndir
Myndir
28.12.2007 21:55:20 / olamaja

Flutningur

Er búin að færa mig yfir á aðra bloggsíðu:

http://www.123.is/olamaja/

Sjáumst vonandi þar.

kveðja

ÓLA MAJA


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 00:12:07 / olamaja

Tískusýning

Já nú er kominn 15.des og ég komst ekki upp í Egilsstaði til að vera viðstödd tískusýninguna sem East Iceland Design  sem er fyrirtæki sem þær stöllur Eva og Guðrún eru með. Hönnunar og framleiðslufyrirtæki sem er staðsett að Helgafelli 4 þar sem Eva mín er með saumastofuna sína sem heitir “SAUMAKOFINN”  Þær eru alveg mega flínkar og klárar og hefði ég svo sannarlega viljað vera þarna en komst ekki.


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 09:07:24 / olamaja

Veikindi og Grobb hjá "miðaldra" konu!

Er búin að liggja heima núna í 3 daga því eftir mánaðarlangt (rúmlega) kvef fékk mín bólgu í lungun sem orsökuðu þvílíkt tak hægra megin í brjóstholið að ég var hér næstum með hljóðum. En er búin að fá lyf og mér finnst þetta loksins vera farið að lagast þannig að ég kemst í vinnu á mánudaginn. Þá tekur jólatraffíkin við í póstinum og er eins gott að vera í sæmilegu formi fyrir þau hlaup. Svo skreppum við hjónakornin suður til Reykjavíkur þann 19.des til að vera viðstödd útskrift Jóhanns Geirs úr grafískri miðlun frá Iðnskólanum. Þá eru öll mín börn búin að ná sér í (húfur) menntun og þá get ég farið að brosa hringinn :D

Talandi um bros. Var að lesa frétt um að tannlæknar væru að íhuga hvort þeir ættu að taka upp á því að tilkynna vanrækslu hjá foreldrum vegna ástands tanna hjá sumum börnum! Það er víst skelfilegt ástand hjá mörgum af þessum ungu greyjum.:^) Ég verð að monta mig og mín 4 börn svolítið, því aldrei hefur verið gert við skemmd hjá neinu þeirra nema eitt títuprjónsgat hjá Evu eftir að hún varð 31 árs!!! Geri aðrir betur! Og þá kveið þetta grey meira fyrir því að segja mömmu sinni frá því en að fara til tannlæknis í viðgerð :S Er alveg rosalega stolt af þeim að geta haldið þessu svona góðu ;-)   Er að vísu mjög stolt af þeim bara svona yfirleitt, því þau eru búin að standa sig vel og eru ávalt ljúf og góð við mömmu sína (sem er náttúrulega sú besta í heimi he he)

En nú ætla ég að hætta þessu grobbi og fara að dunda mér eitthvað því ég er ekki í standi fyrir nein stór átök.

Svo þangað til næst gott fólk, njótið aðventunnar og munið að vera þakklát fyrir það sem þið hafið, því það eru margir sem eiga um sárt að binda.

Óla Maja

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 18:12:39 / olamaja

ljósin í bænum.

Jæja þá er kominn desembermánuður og jólin nálgast í allri sinni dýrð.

Það er eins gott að verða ekki lasin og þurfa til læknis þessa dagana. Enginn læknir frá því í síðustu viku og fram til 10. desember! Það á víst að þjóna okkur frá hinum fjörðunum þar sem þetta er orðið eitt sveitarfélag, en einhvern veginn virðist það vera lítill tími sem þeir háu herrar geta séð af í okkur. Jú við getum pantað okkur tíma á öðrum fjörðum en ef maður er reglulega lasinn þá keyrir maður nú ekki langar vegalengdir.

En nóg af þessu nöldri. Hér var jólahlaðborð sl laugardag með balli á eftir og fórum við Úlli þangað, í boði bankans. Vorum að vísu ekki á ballinu, fórum heim eftir borðhaldið sem tók nú hvorki meira né minna en upp undir 4 klukkutíma! Fyrst var súpa, síðan voru forréttir og svo aðalréttir og að síðustu eftirréttir. Allt alveg gjeggjað gott og át maður sko alveg á sig gat. Við vorum eitthvað svo sammála um að langa ekki á ball að við drifum okkur heim og það var ekkert smá gott að skríða upp í rúmið sitt eftir allt þetta át.  Svo á sunnudeginum var Jólabasar í Skrúð og fór ég og keypti mér tertu og smákökur svona til styrktar.

Ég keypti líka svona smávegis í viðbót. Nóg var af alls konar varningi og ég verð að viðurkenna, að mig fór að klæja í fingurna eftir föndri en það hef ég að mestu látið vera í afar langan tíma fyrir utan kortin og smá prjónaskap. En jólakortin eru að verða tilbúin og nokkrar jólagjafir komnar í hús. Þarf helst að vera búin að versla jólagjafirnar fyrir miðjan mán. því eftir það verð ég allan daginn í bankanum og að sjálfsögðu póstinum sem verður örugglega ansi góð törn, þar sem mjög mikið er að gera svona rétt fyrir jólin hjá fólki að póstleggja kort og gjafir. Alla vega hefur það verið reynslan undan farin ár (nú getur maður farið að telja í árum he he)

En þar til næst hafið það sem best

Óla Maja


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 17:52:16 / olamaja

Prins Daníelsson

Langar svo að benda ykkur á myndir á síðunni hennar Karenar Völu af henni og litla bróður. Alveg meiri háttar sætar myndir.

Nú situr maður bara og gerir kort og aftur kort því ég fékk pöntun upp á 40 þrívíddarkort! Átti sem betur fer myndir til að setja á stóran hluta af þeim.  Svo er ég búin að gera rúml 20 fyrir okkur hér af annarri tegund. Þetta kom mér í smá jólastuð. Alla vegana nógu mikið til að kaupa fyrstu jólagjöfina.  Það er svo gott að vera ekki að því á síðustu stundu. Fer til Reykjavíkur á föstudaginn og ætla þá að reyna að kaupa einhverjar í viðbót.

en nóg í þetta skiptið

hafið það gott

Óla Maja


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 20:49:56 / olamaja

Nóvember, næst síðasti mánuður ársins!

Jæja þá er kominn Nóvember! Hrikalega líður tíminn hratt. Nú er þessi “allan daginn” vinna búin í bili, eða þangað til 10 des, þá kemur jólavertíðin og þá er aftur svona “allan daginn” fram að jólum því eins og venjulega fyrir jól þá er ansi mikil traffík svona vægast sagt. En núna ber Þorlák upp á sunnudag svo þá er frí.

Ég var að eignast lítinn (börn eru það nú venjulega þegar þau fæðast) frænda þann 31.okt. Það var hann Daniel Borgþórsson (systursonur) og Hrefna Regína sem eignuðust prins en fyrir eiga þau eina stelpu sem heitir Karen Vala og er algjör dúlla. Tveggja ára síðan 30.júlí. Til hamingju öll sömul með fjölskyldustækkunina.

Það er ekkert að gerast í húsasölumálunum :( Enda get ég sagt ykkur það að BARA að hugsa til þess að fara að flytja er hræðilegt. Þið getið ekki ímyndað ykkur dótið sem til er á þessu heimili!!! Við erum líka með muni úr einum 4 búslóðum! Við erum búin að búa hér í þessu húsi í 18 ár frá því í mars og ég hef ALDREI nokkurn tíman búið svona lengi í einu á sama staðnum. Erum búin að búa hér á Fásk í 20 ÁR !!! og ala upp 4-5 börn en eins og allir vita þá er ansi ólíkt að ala upp börn úti á landi eða á höfuðborgarsvæðinu en ég prufaði það fyrst, alveg þangað til ég varð ófrísk af Jóa. Þá fluttum við austur. Nú er hann að reyna að draga okkur suður en við erum nú ekki alveg búin að ákveða okkur með hvað við gerum EF við seljum húsið. Kemur í ljós þegar og ef að því kemur, þá verðum við að sjálfsögðu að ákveða okkur ;)

 En nóg af bullinu í bili.

Hafið það sem best þar til næst

ÓLA MAJA


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 22:07:39 / olamaja

Merkisdagurinn 24. oktober

Í dag er merkisdagur x 3 !!!    Við hjónakornin eigum 9 ára brúðkaupsafmæli, eftir 25 ára sambúð! Sigga systir mín á afmæli, er 44 ára í dag. Til hamingju með daginn litla systir ;-) Og svo má ekki gleyma KVENNAFRÍDEGINUM!

Ég fór á Reyðarfjörð og lét klippa mig, fékk mér nú bara aftur gömlu klippinguna þar sem ég var ekki ánægð með nýju línuna sem ég fékk mér síðast. Nú er ég alsæl og gengur svo mikið betur (vona ég) að eiga við það. Fannst ég vera orðin freeekar drusluleg enda var það líka úr sér sprottið. En hvað um það, ég fór líka í Molann og í fatabúðina (og skóbúðina) sem ég man ekki alveg hvað heitir og verslaði mér þar skó (vantar ALLTAF skó;) ) og síða svarta peysu sem ég get notað bæði sem peysu og sem  kjól við leggings og stígvél.  

Í fyrradag, mánudaginn 22.okt andaðist Reynir Guðjónsson maðurinn hennar Láru frænku eftir harða baráttu við illvíga sjúkdóminn krabbamein. Blessuð sé minning hans. Jarðaförin verður á laugardaginn kl 2. Þannig að hér í plássinu eru jarðafarir með viku millibili og fær nýji presturinn sem er að leysa séra Þóreyju af í veikindafríi nóg að gera því Baldur Björnsson var jarðsettur síðast liðinn föstudag.

En nú ætla ég að fara að gera eitthvað gáfulegt, eins og að búa til jólakort eða prjóna jólagjöf.

Þangað til næst hafið það sem best elskurnar

ÓLA MAJA


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 09:10:18 / olamaja

21.oktober

Fór í Egilsstaði í gær á kortanámskeið (jóla) og gerðum við 3 tegundir af kortum sem voru miserfið en öll mjög skemmtileg. Varð að finna út nýja gerð fyrir þessi jól þar sem ég var orðin uppiskroppa með hugmyndir. Þarna hitti maður margar kellur og þar á meðal hitti ég eina sem ég hef ekki hitt í 18 ár! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, mér finnst það alls ekki svona langt síðan við hittumst! En ég heimsótti hana þegar hún átti yngsta barnið og það er á hreinu hvað það er gamalt þannig að þetta fer ekki á milli mála. Ég þekkti hana en hún þurfti að hugsa sig um. Hélt ég hefði nú ekki breyst svona mikið með árunum (ekkert elst eða þannig he he). Nú er bara að setjast niður og gera jólakortin því það styttist ansi hratt í jólin.

Ætlaði að kíkja á Evu og co þegar námskeiðið var búið en þá var enginn heima þar svo ég dreif mig bara í Bónus og svo heim.  

Fengum heilsumælingu í bankanum á föstudaginn og ég kom vel út úr því nema helv. fitan þarf að léttast um a.m.k. 5 kíló og þá er ég í góðum málum. Kólesterólið og blóðsykurinn í fínu lagi.

Ætla svo í næstu viku yfir á Reyðarfjörð í klippingu. Annað er nú ekki að gerast hér hjá mér fyrir utan vinnu frá 9-5 út þennan mánuð á meðan Inga er í Thailandi.

En þar til næst hafið það sem best

ÓLA MAJA


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 17:22:29 / olamaja

Kominn október,

Það verður önnur foreldrahelgi næstu helgi ;-) þá kemur Jói heim. Hann ætlar aðeins að taka til hendinni með pabba sínum í vinnunni, svona til að ná sér í smá pening. Það er nefnilega dýrt að vera í Reykjavík! Útskriftin hjá honum verður svo núna fyrir áramótin og að sjálfsögðu skreppum við þá suður, ekki spurning.

Fasteignasalinn kom á sunnudaginn og það var alveg meiriháttar sniðug heimsókn. Honum var sko ekki sama hvort þetta snéri svona eða svona og vildi heldur hafa þessa skál á borðinu heldur en hina o.s.frv. alveg yndislegur.

Kann einhver að koma inn myndum á central bloggsíðu þ.e. hjá textanum? Endilega kennið mér það ef það er hægt og þið kunnið.

En nú er ég farin að vinna allan daginn í bankanum því Ingigerður er að fara í frí út okt.mán. Hún er að fara til Thailands hvorki meira né minna. Held að það hljóti að vera rosalega gaman að fara þangað. Væri alla vega alveg til í það.

En þar til næst hafið það gott

ÓLA MAJA


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 22:04:18 / olamaja

gestakoma og fasteignasala

Nú er “pabbahelgi” hjá Úlla ;-) Siggi Fannar er hér í heimsókn. Kom til að ná í gamla bílinn hans Jóa (sem Siggi sjálfur átti áður) og ætlar hann að klára út úr honum, því það er þó nokkuð eftir í þessum “kagga” . Jói notaði peninginn sem hann fékk í fermingargjöf til að kaupa þennan bíl rétt eftir að hann fékk bílprófið. Hann var nú ekki ánægður með mömmu sína þegar hún batt fermingargjafapeninginn í 3 ár í bankanum, en þeim mun ánægðari þegar hann fékk aurinn og gat keypt bílinn ;-)

            Ég setti húsið mitt (okkar) á sölu 16.apríl en mér finnst sú fasteignasala sem tók það í sölu ekki hafa staðið sig. Hef verið að spá í að setja það á aðra sölu og svo í dag kom í bankann maður til að tala við Ingu og þannig vildi til að hann vann á fasteignasölu og ég fékk nafnspjald hjá honum og bað ég hann að koma í heimsókn og ætlar hann að koma á sunnudaginn!!! Þannig að kannski fer eitthvað að ganga með þessa húsasölu. Ég nenni bara ekki að búa í allt of stóru húsi, það gerði sko sitt gagn á meðan þessi 5 börn sem við Úlli eigum til samans voru hér að alast upp, en núna eru þau næstum öll farin að heiman og þá er húsið ALLT of stórt! Jói væri náttúrulega ennþá heima ef við byggjum fyrir sunnan, þar sem hann er í skóla, og þess vegna þarf hann að leigja sér húsnæði en við erum svo HEPPIN að hún Sigurveig mín hefur aukaherbergi í kjallaranum hjá sér sem hún leigir bróður sínum og þess utan hefur hann óskertan aðgang að heimilinu hennar þar sem hún er SVO GÓÐ systir og þau svo góðir vinir.

Jæja er þetta ekki ágætt í bili?

Þar til næst elskurnar, hafið það sem allra best ;-)

ÓLA MAJA


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 08:59:14 / olamaja

Ansi góðar reglur!

Bill Gates hélt fyrirlestur fyrir unglinga í gagnfræðaskóla í Bandaríkjunum. Hann talaði um reglurnar 11 sem þau hafa ekki og munu ekki læra um í skólanum.
 
Hann talaði um agaleysi og nýjar áherslur í kennslu sem munu skila nýrri kynslóð út í þjóðfélagið, dæmdri til að mistakast.

Regla 1: Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því.

Regla 2: Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til    þú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig.

Regla 3: Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú hefur unnið fyrir því.

Regla 4:   Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu þangað til að þú færð yfirmann.
Regla 5:  Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa hamborgurum. Þau kölluðu það TÆKIFÆRI.

Regla 6:  Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo hættu að væla og lærðu af mistökunum.

Regla 7:  Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona
leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað fyrir uppeldi þitt, þvo fötin þín, þrífa til draslið eftir þig og hlusta á hvað þú ert COOL og þau eru hallærinsleg. Svo áður en þú og vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að taka til og koma reglu á herbergið þitt.

Regla 8:  Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama prófið aftur og aftur. Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu.

Regla 9:  Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll
sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að finna sjálfan þig.  Gerðu það í þínum eigin tíma !

Regla 10:  Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveru-leikanum þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.

Regla 11:  Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 20:06:18 / olamaja

Fáskrúðsfjörður hvað!

 Jæja þá er Fáskrúðsfjörður kominn á kortið. Ef einhver hefur ekki vitað af honum og haldið að hér gerðist aldrei neitt þá hefur sá hinn sami vaðið villu vegar. Nú er fjörðurinn meira að segja búinn að vera í heimsfréttunum, að vísu er það nú ekki komið til af góðu, en sumir segja að illt umtal sé betra en ekkert. Þetta voru nú ekki hinir frómu og góðu bæjarbúar sem komu okkur í fréttirnar heldur “aðkomumenn”, eiturlyfjasmyglarar og einhver óþjóðalýður! Hér fylltist allt af lögreglu, sérsveitarmönnum og alls konar rannsóknarliði. Svo komu hér bæði varðskip og eitthvað var þyrla að sveima hérna líka. Já það verður nú vart við það þegar svona hópar birtast hér í þessu litla samfélagi. Mér finnst alveg frábært hvernig þeir stóðu að þessu öllu saman. Greinilega vel skipulögð aðgerð og færir menn að verki! Þeir ættu að fá einhvern af þessum krossum sem forsetinn er alltaf að úthluta annað slagið. Finnst ykkur  það ekki? En ég er bara fegin að þessi efni komust aldrei á markaðinn. Jæja þá er ég búinn að pústa aðeins og segi bara bless þar til næstÓLA MAJA

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 03:06:43 / olamaja

Afmælisóskir ferðalög o.fl.

Í dag 19. september á Guðmundur  Ingi sonur minn afmæli. TIL HAMINGJU ELSKU STRÁKURINN MINN. Hann er 23 ára í dag. Mikið rosalega líður tíminn hratt. Mér finnst það sko ekki svona langt síðan hann fæddist. Skrítið hvað börnin eldast á meðan maður eldist ekkert sjálfur he he! Hann Árni Freyr kærasti Sigurveigar átti afmæli 16.sept og óska ég honum innilega til hamingju með daginn.

 En ég hef verið frekar löt við að blogga undanfarið. Veit ekki alveg af hverju en ætla að reyna að bæta úr því núna.

Vikuna eftir að við komum heim frá Spáni þá var ég að vinna á Stöðvarfirði. Mér finnst einhvern veginn að ég sé búin að vera að vinna þar í allt sumar. Alla vegana er ég búin að vera þar a.m.k. í einar 9 vikur í afleysingum þetta sumarið! Mér líkar vel að vinna þarna því Stöðfirðingar eru alveg öðlingsfólk.Í fyrra vann ég svo mikið aukalega við minn vinnutíma að ég græddi auka sumarfrí sem ég er að taka núna (frá 10.-21.sept) nema hvað mánudaginn  þann 10. þá vann ég fyrir Steinu því hún varð amma þann 7.sept og langaði að skreppa suður og kíkja á ömmubarnið og svo föstudaginn þann 21. þá verð ég að vinna fyrir Ingu því hún er að fara eitthvað, þarf alla vegana frí!!! Segiði svo að ég sé ekki flexible! Fyrri vikan var að vísu hjá mér mest megnis í rúminu því ég fékk þvílíkt tak í bakið rétt áður en ég var búin að klára daginn fyrir Steinu að ég gat bara ekki hreyft mig fyrr en seinnipartinn á fimmtudeginum. Sem betur fer því bankinn bauð í grillferð á föstudagseftirmiðdag, og ég gat farið með eða réttara sagt við Úlli gátum farið. Við fórum fyrst upp í Fljótsdal og skoðuðum Fljótsdalsvirkjun og verð ég að segja að mér fannst þetta alveg stórkostlegt, allt svo stórt og mikið, mikið meira en ég átti von á. Síðan var okkur keyrt í Atlavíkina  þar sem Lagarfljótsormurinn beið okkar og á meðan siglt var til Fellabæjar þá snæddum við alveg meiriháttar góða grillmáltíð og svo var að sjálfsögðu spjallað o.s.frv.  Sem sagt alveg rosalega vel lukkuð ferð. Takk fyrir okkur.

Á föstudagsmorguninn fékk ég loksins tíma í klippingu eftir 9+ vikur, var orðin eins og villimaður (fannst mér a.m.k) og lét setja svona skerpingarlit og klippa nýja línu (kjörkuð þar sem ég er svo hroðalega föst í gömlum venjum). 

Í gær fór ég yfir á Reyðarfjörð í smá dekur hjá Sigrúnu snyrtidömu. Síðan fór ég með bílinn í skoðun sem gekk eins og í sögu (að sjálfsögðu) og svo fór ég og fékk mér kaffi hjá Kristínu systur minni sem ég geri því miður allt of sjaldan. Á leiðinni heim eftir að ég var búin að fara í Krónuna og versla í matinn, kom ég við á nýja pósthúsinu til að skoða það, því ég var ekki heima þegar allt kynningarstarfið og boðin voru! Meiriháttar pláss og huggulegheit.

 En nú er ég að hugsa um að hætta þessu bulli og kveðja. Þar til næst hafið það sem allra best elskurnar OG ENDILEGA kvittið fyrir komuna ;-)

Óla Maja

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 03:05:42 / olamaja

kvitt kvitt kvitt

Elskurnar mínar skiljið eftir ykkur spor þegar þið komið á síðuna mína.Það gefur manni orku til að halda úti síðu.

» 11 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 03:00:52 / olamaja

ýmislegt

Jæja já, þá erum við nú komin úr sumarfríinu! Fórum til Albir í vikuferð, sem er svona rólegasti endinn á ströndinni. Benidorm er lengra  “austurfrá” og þar var sko eins og mauraþúfa á ströndinni. Vorum á svaka flottu hóteli og fengum mjög gott fæði (sem var morgunmatur og kvöldmatur)  EN þetta átti  ekki alveg við mig! Aðeins of flott og stíft fyrir minn smekk. Allt svo stórt og í speglum og glerjum, ekki alveg nógu notalegt.  Fórum í fyrra til Tenerife og þar fannst mér allt eitthvað svona heimilislegra og notalegra. Væri til í að fara þangað aftur.

Hef verið að vinna á Stöðvarfirði s.l. viku og svo er aftur frí!  Vann svo mikið auka í fyrra að ég vann mér inn svona gott aukafrí. Veit þó ekki alveg hvað ég tek mikið af því núna. Væri til í að taka eitthvað af því í vetur og fara ti Canarieyja. Líkaði vel þar um  árið!

TIL HAMINGJU STEINA OG INGÓLFUR MEÐ BARNABARNIÐ SEM FÆDDIST NÚNA 7.SEPTEMBER. Hann Sigbergur mágur minn hefði orðið 58 ára í dag hefði hann lifað.

 þar til næst hafið það gott.Óla Maja

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14